Sumarnámskeið í rafíþróttum eru námskeið yfir sumartímann og fyrir börn og unglinga á aldrinum 7-15 árs sem vilja æfi rafíþróttir. Námskeiðin fara fram í Arena Smáratorgi 3. Öllum er heimilt að taka þátt hvort sem viðkomandi æfir með öðru félagi eða ekki. Grunnatriði í rafíþróttum eru höfð að leiðarljósi ásamt því að hafa gaman í skemmtilegum hópi.
Við trúum því að rafíþróttir geti stuðlað að aukinni færni þeirra barna sem hana stunda. Rannsóknir sýna fram á aukna félagsfærni, þrautseigju og lausnamiðaða hugsun á meðal barna sem hafa stundað rafíþróttir.
Börnin læra jafnframt betri hegðun á internetinu, rétta líkamsbeitingu við tölvunotkun, mikilvægi andlegrar heilsu sem og þjálfun vöðvaminnis og snerpu, en hluti af námskeiðinu er dagleg útivera og hreyfingu.
Að lokum er mikilvægt að börnin fari úr sínu eigin herbergi og mæti á rafíþróttaæfingu þar sem það hittir fyrir jafnaldra með sömu áhugamál og heilbrigða nálgun við tölvuleiki undir stjórn þjálfara.
Innifalið í sumarnámskeiði er:
Leikir sem boðið er upp á eru:
Fortnite
Valorant
Roblox
Overwatch
Minecraft
Námskeið sem haldin verða sumarið 2023 verða haldin á eftirfarandi dagsetningum:
Vika 1: 12 -16 júní
Vika 2: 19-23 júní
Vika 3: 26-30 júní
Vika 4: 3 -7 júlí
Vika 5: 10 -14 júlí
Vika 6: 17 -21 júlí
Vika 7: 24 -28 júlí
Vika 8: 14-18 ágúst
Verð fyrir sumarnámskeið í rafíþróttum 2023 er kr. 19.900 kr.- fyrir 5 daga námskeið og 4 daga 16.320kr.-
Námskeið hefst klukkan 09:00 og stendur til 15:00 en hægt er að bæta við gæslu til 16:00.
Þátttakendur eru beðnir um að koma klædd í þægilegum fatnaði og hafa með fatnað fyrir útiveru. Einnig er æskilegt að hafa með sér hollt nesti og drykk. Iðkendur mega koma með sinn eigin búnað lyklaborð, mús eða heyrnatól en hinsvegar er allur búnaður til staðar í Arena.
Skráning á sumarnámskeið 2023 eru hafnar og fer skráning fram HÉR