● Metnaðarfullar rafíþróttaæfingar
Rafíþróttir
hjá Arena
Við bjóðum bestu aðstöðu landsins til ábyrgrar þjálfunar rafíþrótta í samstarfi við íþróttafélög í Reykjavík og Kópavogi.
Reynslumiklir þjálfarar í rafíþróttum
Arena vill nálgast rafíþróttaþjálfun á faglegan hátt og leggur áherslu á menntun þjálfara sinna. Við trúum því að rafíþróttir geti stuðlað að aukinni færni þeirra barna sem hana stunda. Rannsóknir sýna fram á aukna félagsfærni, þrautseigju og lausnamiðaða hugsun á meðal barna sem hafa stundað rafíþróttir.
Börnin læra jafnframt rétta hegðun á internetinu, rétta líkamsbeitingu við tölvunotkun, mikilvægi andlegrar heilsu sem og þjálfun vöðvaminnis og snerpu.
Að lokum er mikilvægt að börnin fari úr sínu eigin herbergi og mæti á rafíþróttaæfingu þar sem það hittir fyrir jafnaldra með sömu áhugamál og heilbrigða nálgun við tölvuleiki undir stjórn þjálfara.
Æft er tvisvar í viku, 90 mínútur í senn en í boði eru eftirfarandi greinar:
Fortnite, Minecraft,Roblox, Valorant, CS2 auk Mix hóps.
Keppnishópar verða í boði fyrir: Fortnite, Valorant og CS2.
Ungmenni á aldrinum 7 til 15 ára (2018-2010) geta tekið þátt í starfinu en þó eru einhverjir hópar með þrengra skilgreindum aldursreglum. Sjá stundaskrá.
Í MIX hóp velja krakkar mismunandi leiki á hverri æfingu, allir leikir í boði - með leyfi foreldra. Mix hópur leggur áherslu á að krakkarnir kynnist hver öðrum og spila í hópum. Hérna er minni fræðsla og lærdómur. Mælt með fyrir krakka á aldrinum 7-11 ára.
Hægt er að skoða aðstöðuna hjá Arena alla daga vikunnar ásamt því að grípa í pinnann eða músina gegn vægu gjaldi.
Vert er að minna á að það kostar ekkert að koma og prófa 1-2 æfingar í upphafi annar.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar með því að senda tölvupóst á netfangið: arena@arenagaming.is og/eða á markaðsstjóra Arena á: hrefnalif@arenagaming.is
Æfing í rafíþróttum lítur svona út:
- 20 mín - Hreyfing og fræðsla.
- 20 mín - Upphitun í spilun.
- 30 mín - Spilun með markmiði og skipulagi.
- 20 mín - Slökun og teygjur.
Við mælum með fróðleiksbæklingi um rafíþróttir sem Elko gaf út í samvinnu við RÍSÍ og Samfés en hann má nálgast hér.
Algengar spurningar
Algengar spurningar




