Skráning er hafin í rafíþróttir á vorönn hjá Arena en að þessu sinni eru þrjú íþróttafélög í samstarfi við okkur; Breiðablik, ÍR og HK.
Hægt er að nýta frístundastyrk til að greiða niður æfingagjöld!
Nánari leiðbeiningar fyrir skráningu hjá Breiðablik:
–
Æft er tvisvar í viku, 90 mínútur í senn undir handleiðslu þjálfara sem eru menntaðir í rafíþróttaþjálfun frá RÍSÍ auk þess að vera með töluverða reynslu í umsjón og umgengni við börn.
Á haustönn eru í boði eftirfarandi greinar hjá Breiðablik: Minecraft, Fortnite, Overwatch, FPS hópur og síðan Mix hópur. Ungmenni á aldrinum 7 til 15 ára geta tekið þátt í starfinu en þó eru einhverjir hópar með þrengra skilgreindum aldursreglum. Sjá stundaskrá.
Á haustönn eru í boði eftirfarandi greinar hjá ÍR: Fortnite, FPS hópur og síðan Mix hópur. Ungmenni á aldrinum 7 til 15 ára geta tekið þátt í starfinu en þó eru einhverjir hópar með þrengra skilgreindum aldursreglum. Sjá stundaskrá.
Á haustönn eru í boði eftirfarandi greinar hjá HK: Fortnite og Mix hópur. Ungmenni á aldrinum 7 til 15 ára geta tekið þátt í starfinu en þó eru einhverjir hópar með þrengra skilgreindum aldursreglum. Sjá stundaskrá.
LÝSING Á GREINUM:
Mix yngri og eldri: Í blönduðum/mix hóp velja krakkar mismunandi leiki á hverri æfingu, allir leikir eru í boði en leyfi foreldra þarf ef spila á leiki sem hafa lágmarks aldursviðmið. Mix hópur leggur áherslu á að krakkarnir kynnist hver öðrum og því að spila í hópum. Minni áhersla lögð á þróun hæfni í hverjum leik fyrir sig og meiri áhersla á félagslega þáttinn. Mælt með fyrir krakka á aldrinum 7-11 ára en öll velkomin.
FPS Hópur: Í þessum hóp er sjónum beint að vinsælum fyrstu persónu skotleikjum s.s Counter Strike 2, Valorant, Call of Duty og fleiri leikjum. Allir leikir í þessum hóp hafa lágmarks aldursviðmiðið 16 ára og því jafngildir skráning í hópinn því að foreldri gefi leyfi fyrir sitt barn að spila leikina. Áhersla er lögð á aukna hæfni í FPS leikjum sem allir deila svipuðum megin þema auk þess að þjálfa félagslega færni og læra að spila saman í hóp.
Minecraft / Fortnite / Rocket League / Overwatch hópar: Þessir hópar einbeita sér að sínum leik og leggja mikla áherslu á aukna færni og sérhæfingu í sínum leik. Einnig er lögð áhersla á félagslega færni og það hvernig eigi að spila saman í hóp.
–
–
Eins og áður hefur komið fram þá er aðstaða deildinnar hjá okkur í Arena, Smáratorgi 3 sú flottasta á landinu.
Hægt er að skoða aðstöðuna hjá Arena alla daga vikunnar ásamt því að grípa í pinnann eða músina gegn vægu gjaldi, að ógleymdum veitingastaðnum Bytes.
Það kostar ekkert að koma og prófa 1-2 æfingar í upphafi annar. Hlökkum til að sjá ykkur!
–
Ef einhverjar spurningar vakna hafið samband við yfirþjálfara Arena, Daníel Sigurvinsson á netfanginu danielsig@arenagaming.is.