Risastórt Eurovision pubquiz verður haldið í Arena miðvikudaginn 10 maí og hefst fjörið kl 20:30! Bræðurnir Aron Mola og Arnar Þór sem halda uppi hlaðvarpinu Ólafssynir í Undralandi eru ósviknir euro aðdáendur og ætla því að vera með alvöru stemningu og sjá um pubquiz sem snýst auðvitað einungis um Eurovision. Finndu vin þinn sem veit allt um Eurovision, og fáðu hann í lið með þér og þið gætuð nælt ykkur í glæsilega vinninga. Þá verða einnig frábært tilboð á veitingum og frítt inn.